IV.
Verndaraðgerð
3.1.
Frostvarnaraðgerð:
Ef hitastig útblástursrörsins er of lágt í kælingar, rakaeyðingar eða orkusparandi
stillingu, þá fer tækið sjálfkrafa í verndarham; ef hitastig útblástursrörsins fer yfir ákveðið hitastig þá
getur tækið farið sjálfkrafa tilbaka í venjulega virkni.
3.2.
Yfirflæðisvörn:
Þegar vatnið í vatnspönnunni fer yfir viðvörunarmörkin þá sendir tækið sjálfvirkt út
viðvörunarhljóðmerki og viðvörunarljósið fyrir „FULLT“ blikkar. Á þessari stundu þarf að færa
frárennslisrörið sem tengir tækið eða vatnsúttakið við ræsi eða annað frárennslissvæði til að tæma
vatnið (fyrir nánari upplýsingar skal sjá
„Leiðbeiningar um frárennsli“ í lok þessa kafla). Þegar vatnið hefur verið tæmt þá
fer tækið sjálfkrafa aftur í upprunalegt ástand.
3.3.
Sjálfvirk afþíðing (gerðir með kælingu hafa þessa aðgerð): Tækið hefur sjálfvirka
afþíðingaraðgerð. Hægt er að framkvæma afþíðingu með fjögurra-átta viðsnúningi loka.
3.4.
Verndaraðgerð þjöppunnar
Til að auka endingartíma þjöppunnar þá hefur hún verndaraðgerð með þriggja mínútna ræsingartöf
eftir að slökkt er á þjöppunni.
V.
Uppsetning og stilling
1.Uppsetning
:
Viðvörun: Áður en færanlega loftræstingin er notuð skal hafa hana upprétta í a.m.k. tvær
klukkustundir.
Hægt er að færa loftræstinguna auðveldlega í herberginu. Tryggið að loftræstingin sé í
uppréttri stöðu þegar hún er færð og setja skal hana á flatt yfirborð. Setjið ekki upp né notið
loftræstinguna í baðherberginu eða öðrum stöðum þar sem raki er.
1.1 Setjið upp hitarörssamstæðuna (eins og sýnt á mynd 1)
PUSH ÝTIÐ
Mynd 1
1)Takið út ytri tengisamstæðuna og útblástursrörssamstæðuna og fjarlægið plastpokana;
2)Setjið hitarörssamstæðuna (enda útblásturssamskeytanna) í loftop bakspjaldsins (ýta til
vinstri) og klárið samsetninguna (eins og sýnt á mynd 1).
1.2 Uppsetning á íhlutum gluggaþéttiplötu